Skemmtilegt boðskort sem er sett saman af þremur kortum. Fjórar myndir á sér renning, boðskort og lítill miði sem á stendur: Taktu daginn frá.
Eitt vinsælasta kortið hjá okkur síðustu ár!
Hægt er að fá fleiri liti.
Athugið að band eða borði fylgir ekki með, en kortin koma götuð svo viðskiptavinur bindur þau saman.
Prentað er á hágæða Svansvottaðan Munken Polar 300 gr. pappír. Umslög fylgja.
Ath. Viðskiptavinur skrifar sinn texta og setur myndir í viðhengi eftir að greiðsla hefur farið í gegn.