Sætisskipan sem tilvalið er að láta standa á trönum við inngang brúðkaupsveislunar. Stærðin er A2 (42x59,4cm) sem límt er á foam board.
Sniðugt er að láta borðin í brúðkaupinu heita eitthvað sniðugt, td: Uppáhalds bíómyndirnar, götuheiti þar sem brúðhjónin hafa búið, borgir, lönd, lög, hljómsveitir sem eru í uppáhaldi... möguleikarnir eru margir!
Að fenginni reynslu - er best að ákveða sætisskipan ca 5-7 dögum fyrir brúðkaupið.
Ath. Viðskiptavinur skrifar sinn texta eftir að greiðsla hefur farið fram. Einnig er hægt að setja skjal með texta í viðhengi.